|
Innritun í Sumarskólann í FB er nú í fullum gangi. Best er að ganga frá skráningu á netinu.
Hér til hliðar má sjá blikkandi kassa (Innritun í Sumarskólann í FB, blóm og Smellið hér). Þegar búið er að ýta á þennan kassa kemur upp valmynd þar sem sjá má stundatöflu. Þar vinstra megin til hliðar (í bláum kassa) stendur sumardeild. Ýta þarf á sumardeld og þá kemur fyrir neðan sumarnám. Ýta á sumarnám. Þá koma allir áfangar Sumarskólans í FB í röð og box fyrir framan þá. Nemendur haka við þá áfanga sem þeir vilja og neðst má sjá hvar þeir raðast í stundatöflu. Rétt fyrir ofan stundatöfluna er hnappur þar sem stendur Áfram.
Þá kemur upp ný valmynd þar sem nemendur þurfa að skrá kennitölu sína, síma og netfang. Neðarlega á þessari síðu eru tveir valkostir um greiðslu skólagjalda og ýta skal í viðeigandi box. Annars vegar er valkostur um að greiða með kreditkorti og þá er möguleiki á að skipta greiðslum í allt að þrjá hluta. Ef skipta á greiðslu þarf að skrá kennitölu eiganda kortsins og nafn (ef það er annar en nemandinn sjálfur). Hins vegar er hægt að greiða með millifærslu og þá þarf að greiða alla upphæðina inn á bankareikning Sumarskólans í FB, en bankanúmer og kennitölu skólans má sjá á sama stað.
Þegar öllu þessu er lokið ýta nemendur á hnapp (rétt fyrir ofan stundatöflu) þar sem stendur Innrita mig. Þá er nemandinn innritaður og ekkert þarf að gera meira - nema náttúrulega stunda námið vel.
|
|
|
Sumarskólinn í FB hefst þriðjudaginn 29. maí og síðasti kennsludagur er 22. júní. Jafnframt verða nokkrir áfangar kenndir laugardaginn 23. júní.
Prófdagar verða 25., 26. og 27. júní.
Einkunnir eru afhentar og prófin sýnd 28. júní frá kl. 17:00 til 19:00.
Kennt er frá kl. 17:30 til 19:40 og 20:00 til 22:10.
Um 90 áfangar í boði.
Dreifnám í fjölmörgum áföngum.
Nemendur mega taka eins marga áfanga og þeir kjósa.
Engin mætingaskylda er í Sumarskólanum í FB.
Verð á einingu er 6.600 krónur.
Hlutfallslegur afsláttur er fyrir þá sem taka margar einingar. Boðið upp á léttgreiðslur.
Nám við Sumarskólann í FB er matshæft í öðrum framhaldsskólum.
Úrvals réttindakennarar með mikla reynslu.
Netinnritun hefst 1. apríl. Almenn innritun í FB hefst 21. maí á milli 16:00 og 18:00 virka daga.
Frekari upplýsingar á www.fb.is og í símum 570 5613, 570 5620 og 862 7610.
Einnig eru frekari upplýsingar í felligluggum fyrir ofan myndina hér að ofan.
|
|
Sumarskólinn í FB býður upp á námskeið fyrir nemendur sem hafa lokið 10. bekk og vilja hækka einkunn sína. Boðið er upp á nám í stærðfræði og dönsku. Frekari upplýsingar má sjá hér fyrir ofan myndina undir hnappnum Námsframboð (0-áfangar). |
|
|
|